Litli klettur starfar við steinslípun, kjarnaborun og steinsögun ásamt öðru tilfallandi. Hjá Litla kletti gengur þú að reyndum starfsmönnum sem veita þér góða þjónustu, sama hvort þú ert með stórt eða smátt verk.
Fá tilboðVið bjóðum upp á fjölbreytta þjónustu í steinvinnu og tökum að okkur verk af öllum stærðum og gerðum.
Litli klettur hefur um árabil verið leiðandi fyrirtæki í steinslípun á Íslandi. Stærstur hluti steinslípunar er slípun á nýbyggingum, bæði loft og veggir, en einnig er alltaf eitthvað um að slípa þurfi í eldri húsum vegna breytinga eða annars. Við höfum slípað hraunaða, steinaða og málaða veggi, ásamt því að slípa niður flísalím og ýmislegt annað.
Við slípum allt sem hægt er að slípa!
Við erum með margar gerðir af sögum og eru verkefnin fjölbreytt. Við búum yfir margra ára reynslu af fjölbreytilegum verkefnum. Gildir einu hvort þú þarft að taka fyrir nýjum glugga eða hurðargati, breikka glugga eða hurðargat – eða fjarlægja veggi, gólf eða svalir. Við sögum fyrir þig óháð steypugerð og þykkt.
Sögum bæði stórt og smátt
Við erum vel búnir í múrbroti, gildir einu hvort verkið er stórt eða smátt. Eigum mikið af nýjum tækjum og margra ára reynslu í vinnu í mismunandi aðstæðum á Íslandi. Ekkert verk er of lítið eða of stórt fyrir Litla Klett. Tökum að okkur að brjóta í öllum aðstæðum – úti og inni!
Brjótum í öllum aðstæðum – úti og inni!
Við erum með öflugan mannskap sem er vanur borun. Hjá Litla kletti erum við einnig vel tækjum búnir fyrir kjarnaborun og notum aðeins hágæða demantsbora. Við getum borað í loft, veggi og gólf óháð steypugerð og þykkt.
Borum stórt og smátt bæði hátt og lágt!
Við hjá Litla Kletti erum stoltir af því að í gegnum tíðina hefur myndast hefð fyrir því að til okkar sé leitað með margs konar verkefni. Við erum vanir að bretta upp ermarnar og erum óhræddir við erfiðisvinnu.
Það eru engin vandamál, bara verkefni sem þarf að vinna
Síðustu ár hefur LK tekið að sér rifverkefni á léttum veggjum, loftum og gólfum úr timbri, gifsi og vikri. Við kunnum að fjarlægja asbest þannig að það sé hvorki skaðlegt okkur né notendum húsnæðisins. Til að vera í fremstu röð í okkar fagi höfum við fjárfest mikið í nýjum og góðum tækjum.
Við rífum svo þú getir byggt!
Það var árið 1994 sem Jón Ingiberg Guðmundsson byrjaði að vinna við steinslípun. Fyrstu árin var nánast eingöngu slípað loft, en síðan færðist það út í veggi og loks í að slípa hús að utan. Árið 1999 var svo ákveðið að stofna fyrirtæki sem hlaut nafnið Litli klettur — nafn sem kemur frá Flateyri.
Frá stofnun hefur fyrirtækið vaxið og dafnað með hverju árinu og fleiri verkþættir bæst við steinslípunina, t.d. steinsögun, kjarnaborun og gólfslípun. Í dag slípum við loft, veggi og gólf, slípum burt málningu og myglusvepp, og tökum að okkur steinsögun, fræsingu fyrir hita- og rafmagnsrörum, kjarnaborun og niðurrif.
Í desember árið 2014 seldi Jón fyrirtækið og keyptu þrír starfsmenn það. Nú er það í eigu Marcin Antolek, Maríusar H. Gunnsteinssonar og Guðbjarts Jónssonar. Starfsmenn Litla kletts leggja hart að sér og veita öllum sem til þeirra leita eins góða þjónustu og völ er á.
Úrval mynda úr verkefnum okkar. Fylgdu okkur á Facebook til að sjá meira.
Hringdu eða sendu okkur tölvupóst og við svörum eins fljótt og auðið er.